Agricultural University of Iceland - Hvanneyri, IS - 311 Borgarnes - tel.: 433 5000 fax: 433 5001 - mail: lbhi@lbhi.is

 

 
Um háskólann
Nám
- Háskólanám
    - Meistaranám
- Starfsmenntanám
    - Fjarnám
- Endurmenntun
- Kynningarefni
- Umsóknir
Hagnýtar uppl.
Nemendur
Uppl. Stefanía
Rannsóknir
Bókasafn
Útgáfa
Tölvumál
Gagnleg vefföng
Sérvefir
Erlend samskipti

 

 
Innri vefur

 
 
Póstur á vefstjóra

Fjarnámslausnir í háskólanámi

Þrjár af fimm háskólabrautum bjóða upp á fjarnámslausnir í B.S. og M.S. námi svo að nemendur geti nýtt sér staðarnám á Hvanneyri þó svo að þeir búi ekki í nágrenni háskólans. Þetta eru brautirnar búvísindi, skógfræði og landgræðsla og náttúru- og umhverfisfræði.

Eftirfarandi samþykktir gilda um fjarnámslausnirnar:

Tæknilegar lausnir felast í upptökum af fyrirlestrum í staðarnámi á svokallaðar hljóðglærur sem nemendur með fjarnámslausnir geta hlusta á yfir netið í gegnum kennslukerfi LbhÍ þegar þeim hentar og jafnvel aftur og aftur ef þörf er á. Slíkt krefst ISDN+ eða ADSL tengingar hjá nemenda. Nemendur með fjarnámslausnir vinna sömu verkefni og staðarnemar.

Ákveðnar skyldumætingar eru samt nauðsynlegar til að kynna verkefni, sinna verklegum æfingum, taka þátt í vettvangsferðum, o.s.frv. Tvær vikur á hverri stuttönn eru fráteknar sem “skyldumætingavikur” og þær eru gulmerktar undir www.lbhi.is /nemendur/starfsáætlun. Reynt er eftir föngum að leggja "skyldumætingar" í mismunandi námskeiðum þannig að hægt verði að vinna þær í skorpum á Hvanneyri á þessum vikum.
Almennt eru skyldumætingar á Hvanneyri í hverju námskeiði ekki fleiri en þrjár per misseri, og í flestum námskeiðum eru þær ein til tvær. Í þeim námskeiðum sem fjarnámslausnum verður ekki við komið er skipulagi þeirra breytt þannig að nemendur geti unnið samfellt í styttri tíma í staðarnámi (skorpukennsla).

Nemendur með fjarnámslausnir geta fengið að taka fjarpróf, t.d. á Akureyri, Egilstöðum, Húsavík, Hveragerði, Ísafirði, o.f. frv.

Nemendur með fjarnámslausnir greiða sérstakt skráningargjald á hverja tekna einingu til skólans vegna þeirrar auknu umsýslu sem fylgir fjarnámslausnunum.

Áhersla skal lögð á að þetta eru einstaklingsmiðaðar lausnir fyrir nemendur sem geta ekki sótt staðarnám á Hvanneyri; þetta er því ekki hreinræktað fjarnám – heldur betri nýting á staðarnáminu. Ávalt skal mælt með við væntanlega nemendur að best sé að koma í staðarnám.

Nánari upplýsingar gefa brautarstjórar viðkomandi brauta:

Búvísindi (emma@lbhi.is)
Náttúru og umhverfisfræði (annagudrun@lbhi.is)
Skógfræði og landgræðsla (bjarni@lbhi.is)