Agricultural University of Iceland - Hvanneyri, IS - 311 Borgarnes - tel.: 433 5000 fax: 433 5001 - mail: lbhi@lbhi.is

 

 
Um háskólann
Nám
- Háskólanám
    - Meistaranám
- Starfsmenntanám
    - Fjarnám
- Endurmenntun
- Kynningarefni
- Umsóknir
Hagnýtar uppl.
Nemendur
Uppl. Stefanía
Rannsóknir
Bókasafn
Útgáfa
Tölvumál
Gagnleg vefföng
Sérvefir
Erlend samskipti

 

 
Innri vefur

 
 
Póstur á vefstjóra


Námsbrautin Skógur og umhverfi veitir nemendum undirstöðuþekkingu í störfum sem lúta að skógrækt og umönnun umhverfis.

Meðal grunngreina eru grasafræði, dýrafræði, jarðvegs- og áburðarfræði, plöntuþekking, vistfræði og umhverfisfræði.
Fjallað er ítarlega um skógræktaráætlanir, umhirðu skóglendis, nýtingu skógarafurða, ræktun skjólbelta, mannvirki í náttúrunni og meðferð lífrænna auðlinda.

Garðyrkjufræðingar af braut skógar og umhverfis starfa við nýframkvæmdir og umhirðu skóga, sinna eftirliti, verkstjórn og fræðslu á sviði skógræktar og landgræðslu og aðstoða við rannsóknir. Námið nýtist vel sem undirbúningur háskólanáms í skóg-, umhverfis- og náttúrufræði.

Bóklegt nám fer fram á Reykjum og tekur fjórar annir. Verklegt nám fer fram á verknámsstöðum sem skólinn viðurkennir og er alls 72 vikur, þar af eru 60 vikur dagbókarskyldar.

Sjá Skógur og umhverfi - 76 einingar

Aðstaða á Reykjum