|
|
 |

Starfsvettvangur þeirra sem ljúka námi í garðyrkjuframleiðslu er við ræktun og framleiðslu plantna og plöntuafurða en einnig starfa margir við sölu og ráðgjöf varðandi plöntur.
Markmið með náminu er að veita nemendum staðgóða þekkingu í garðyrkjuframleiðslu við íslenskar aðstæður. Kennd eru undirstöðuatriði plöntuframleiðslu, s.s. líffræði plantna, jarðvegs- og áburðarfræði, loftslagsstýring, ræktun helstu tegunda og plöntuvernd. Einnig er fjallað um rekstur og rekstrarumhverfi greinarinnar sem og félagslega uppbyggingu hennar.
Á fjórðu önn skiptist námið upp í tvær brautir: Garð- og skógarplöntubraut annars vegar og ylræktarbraut hins vegar.
Námið er góður undirbúningur fyrir háskólanám í garðyrkjuvísindum.
Bóklegt nám fer fram á Reykjum og tekur fjórar annir. Verklegt nám fer fram á verknámsstöðum sem skólinn viðurkennir og er alls 72 vikur, þar af eru 60 vikur dagbókarskyldar.
Aðstaða á Reykjum |
|
|
|