Agricultural University of Iceland - Hvanneyri, IS - 311 Borgarnes - tel.: 433 5000 fax: 433 5001 - mail: lbhi@lbhi.is

 

 
Um háskólann
Nám
- Háskólanám
    - Meistaranám
- Starfsmenntanám
    - Fjarnám
- Endurmenntun
- Kynningarefni
- Umsóknir
Hagnýtar uppl.
Nemendur
Uppl. Stefanía
Rannsóknir
Bókasafn
Útgáfa
Tölvumál
Gagnleg vefföng
Sérvefir
Erlend samskipti

 

 
Innri vefur

 
 
Póstur á vefstjóra


Eins og gefur að skilja starfa þeir sem ljúka tveggja ára námi í búfræði flestir við landbúnaðarstörf en einnig starfa margir innan stoð- og þjónustugreina landbúnaðarins.

Markmið búfræðináms er að auka þekkingu og færni einstaklingsins til að takast á við búrekstur og alhliða landbúnaðarstörf, ekki síst á sviði rekstrar, bútækni, jarð- og búfjárræktar.

Meðal þess sem fjallað er um í náminu er búfjárrækt, jarðvegs- og umhverfisfræði, nytjaskógrækt, málmsuða og bókhald.
Möguleikar á sérhæfingu í náminu eru einkum á sviði nautgripa-, sauðfjár- og hrossaræktar. Á Hvanneyri er nýtt kennslufjós og nýleg fjárhús á Hesti. Þá er skólinn með frábæra aðstöðu til kennslu í hrossarækt og hestamennsku.

Fjórðungur búfræðinámsins felst í námsdvöl á einu af tæplega 80 kennslubúum, sem LbhÍ er með samstarfssamning við. Þar dvelur nemandinn sem einn af fjölskyldunni í þrjá mánuði og tekur þátt í daglegum störfum heimilismanna ( sjá kennslubú hér ).

Námið er góður undirbúningur til framhaldsnáms á sviði almennra náttúruvísinda, búvísinda og dýralækninga.
Boðið er upp á búfræðinám í fjarnámi að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.