|
|
 |

Námið í blómaskreytingum nýtist þeim vel sem hafa hug á að reka eða starfa í blómaverslunum - eða starfa sjálfstætt sem blómaskreytar. Námið er ennfremur góður undirbúningur undir frekara nám erlendis.
Markmiðið með náminu er að kenna nemendum flest það er lýtur að almennum blómaskreytingum svo þeir öðlist þekkingu og færni í öllum þáttum og stílbrigðum blómaskreytinga. Að námi loknu kunna nemendur skil á helstu tegundum afskorinna blóma og greina sem eru á markaðnum.
Þeim er kennt að þekkja algengar tegundir pottaplantna og munu geta leiðbeint almenningi við val og meðferð helstu tegunda afskorinna blóma og pottaplantna. Einnig læra nemendur um helstu atriði sem kunna þarf skil á við stofnun og rekstur blómaverslana.
Starfsvettvangur blómaskreyta er aðallega í blómaverslunum og blómaheildsölum.
Bóklegt nám fer fram á Reykjum og er fjórar annir. Verklegt nám fer fram á verknámsstöðum sem skólinn viðurkennir og er alls 72 vikur, þar af eru 60 vikur dagbókarskyldar.
Aðstaða á Reykjum
|
|
|
|