Agricultural University of Iceland - Hvanneyri, IS - 311 Borgarnes - tel.: 433 5000 fax: 433 5001 - mail: lbhi@lbhi.is

 

 
Um háskólann
Nám
- Háskólanám
    - Meistaranám
- Starfsmenntanám
    - Fjarnám
- Endurmenntun
- Kynningarefni
- Umsóknir
Hagnýtar uppl.
Nemendur
Uppl. Stefanía
Rannsóknir
Bókasafn
Útgáfa
Tölvumál
Gagnleg vefföng
Sérvefir
Erlend samskipti

 

 
Innri vefur

 
 
Póstur á vefstjóra


Grunnnám (BS)
Námsár: 3
Deild: Umhverfisdeild
Einingar: 90
Prófgráða: Nám til fyrstu háskólagráðu

Námið
Hér er fléttað saman námsgreinum á sviði náttúruvísinda, skógfræði, landgræðslu, landslagsfræði og rekstarfræði. Lögð er áhersla á að veita nemendum traustan vísindalegan grunn og um leið að búa þá sem best undir störf sem fræðimenn, stjórnendur eða sjálfstæðir atvinnurekendur. Nemendur geta valið milli tveggja áherslulína innan námsins, skógfræði eða landgræðslu, auk þess sem hluti námsins eru valfög sem gerir nemendum kleift að efla sig á þeim sviðum sem þeir hafa mestan áhuga á sjálfir.

Störf
Umsvif skógræktar og landgræðslu eru að aukast og færast út til landeigenda og þar með að verða málaflokkur sem kemur í æ ríkari mæli upp á borð sveitarfélaga, ýmissa opinberra stofnana og einkaaðila. Á síðustu árum hefur þörf fyrir fólk með trausta fagþekkingu á þessu sviði stóraukist. Einnig eru að verða til lítil verktakafyrirtæki víða um land sem sérhæfa sig á þessu sviði og selja þjónustu sína til bænda, sveitarfélaga og annarra landeigenda. Þetta er þverfaglegt nám sem nýtist einkar vel til starfa hjá hinu opinbera (millistjórnendur) eða til sjálfstæðrar atvinnustarfsemi innan græna geirans. Að auki er boðið upp á tveggja ára einstaklingsmiðað viðbótarnám til meistaragráðu t.d. með áherslu á rannsóknir, skipulag skógræktar eða landgræðslu og stjórnun.

Mastersnám (MS)
Boðið er upp á tveggja ára einstaklingsmiðað viðbótarnám til meistaragráðu t.d. með áherslu á rannsóknir, skipulag og stjórnun.

Nánari upplýsingar hjá brautarstjóra, Bjarna D. Sigurðssyni, netfang: bjarni@lbhi.is

Sjá námskrá
Sjá
Skógfræði og landgræðsla með áherslu á landgræðslu BS - 90
Sjá Skógfræði og landgræðsla með áherslu á skógfræði BS - 90