|
|
 |

Grunnnám (BS)
Námsár: 3
Deild: Umhverfisdeild
Einingar: 90
Titill við útskrift: B.S. - 90 ein. í Náttúru- og umhverfisfræðum
Prófgráða: Nám til fyrstu háskólagráðu
Námið
Námið felur í sér mikinn sveigjanleika í vali, en hefur þó sameiginlegan grunn. Hægt er m.a. að sérhæfa sig á eftirtöldum sviðum með valgreinum: Almenn náttúrufræði, náttúrunýting, landgræðsla.
Áhersla er á náttúru Íslands, áhrif mannsins á hana og náttúruvernd. Kennd eru hefðbundin námskeið í jarðfræði, jarðvegsfræði, veðurfræði, líffræðigreinum, efnafræði o.fl. Meðal valkosta eru síðan námskeið á sviði landnýtingar, beitarfræða, náttúruverndar, gróður- og dýrafræða. landgræðslu, landgræðsluaðferða og ræktunar, umhirðu, nýtingar og vistfræði skóga.
Markmiðið er að gefa nemendum fjölbreytta kosti sem nýtast fyrir margvísleg störf að umhverfismálum sem krefjast sérþekkingar á íslenskri náttúru.
Störf
Möguleg framtíðarstörf tengjast umsjón, stjórn og skipulagi umhverfismála, landnýtingar og landgræðslu og skógræktar, bæði í þéttbýli og dreifbýli. Námið er góð undirstaða fyrir mat á umhverfisáhrifum framkvæmda, ráðgjöf varðandi útivistarsvæði, nytjaskóga og landshlutabundin skógræktarverkefni bænda. Einnig er námið kjörið fyrir þá er hyggja á kennslu í náttúrufræðum á grunn- og framhaldsskólastigi, eða framhaldsnám í ýmsum sérsviðum náttúrfræða
Mastersnám (MS)
Nánari upplýsingar hjá brautarstjóra, Önnu Guðrúnu Þórhallsdóttur,
netfang: annagudrun@lbhi.is
Sjá mámskrá
Náttúra og umhverfi með áherslu á almenna náttúrufræði BS - 90
Náttúra og umhverfi með áherslu á náttúrunýting BS - 90
|
|
|
|