Agricultural University of Iceland - Hvanneyri, IS - 311 Borgarnes - tel.: 433 5000 fax: 433 5001 - mail: lbhi@lbhi.is

 

 
Um háskólann
Nám
- Háskólanám
    - Meistaranám
- Starfsmenntanám
    - Fjarnám
- Endurmenntun
- Kynningarefni
- Umsóknir
Hagnýtar uppl.
Nemendur
Uppl. Stefanía
Rannsóknir
Bókasafn
Útgáfa
Tölvumál
Gagnleg vefföng
Sérvefir
Erlend samskipti

 

 
Innri vefur

 
 
Póstur á vefstjóra


Grunnnám (BS)
Námsár: 3
Deild: Auðlindadeild
Einingar: 90 (180 ects)
Titill við útskrift: B.S. - 90 ein. í Búvísindum
Prófgráða: Nám til fyrstu háskólagráðu

Námið
Í búvísindanámi er lögð áhersla á raunvísindagreinar, námskeið á sviði jarðræktar og búfjárfræða og rekstrar- og tæknigreinar. Markmiðið er að undirbúa nemendur fyrir viðfangsefni og störf sem tengjast ræktun lands og landbúnaðarframleiðslu ásamt því að leggja grunn að framhaldsnámi og fræðistörfum á sviði búvísinda.

Störf
Nám til BS prófs veitir undirbúning fyrir margvísleg störf, sem tengjast landbúnaði, í ráðgjöf, kennslu og rannsóknum. Einnig nýtist námið vel sem undirbúningur fyrir rekstur búa og störf hjá fyrirtækjum sem þjóna landbúnaði og atvinnurekstri í dreifbýli.

Nám á hestafræðilínu undirbýr fólk fyrir störf í leiðbeiningum og ráðgjöf fyrir hrossaræktendur og hestamenn á öllum sviðum hestamennsku. Námið hentar mjög vel sem undirbúningur fyrir frekara nám á sviði hestafræða.

Enskt heiti: Agricultural Production
Enskur titill: B.Sc.- 90 in Agricultural Production

Framhaldsnám (MS)
Tveggja ára starfsmiðað meistaranám í framhaldi af BS gráðu, styrkir stöðu fólks gagnvart störfum við leiðbeiningaþjónustu landbúnaðarins þar sem kröfur um menntun fara vaxandi. MS próf uppfyllir menntunarkröfur fyrir störf landsráðunauta.

Hægt er að stunda einstaklingsbundið meistaranám til MS gráðu (120 ETCS) á öllum meginfagsviðum skólans. Slíkt nám felst í sjálfstæðu rannsóknaverkefni (30 – 90 ETCS) og námskeiðum sem tekin eru við LbhÍ eða samstarfsháskóla ýmist hérlendis eða erlendis. Í búvísindum má einnig stunda starfsmiðað meistaranám með hlutfallslega meira vægi á námskeið í búfjárrækt, jarðrækt og rekstrarfræðum og minna rannsóknaverkefni.

Nánari upplýsingar hjá brautarstjóra Emmu Eyþórsdóttur emma@lbhi.is

Sjá námskrá
Búvísindi - BS - 90
Búvísindi með áherslu á garðyrkju BS - 90
Búvísindi - Meistaranám M.S