|
|
Fjarnám
Í fjarnám á Búfræðibraut eru nýnemar teknir inn árlega að hausti.
Námshraða ákveða nemendur í samráði við skólann. Starfandi bændur geta lokið búfræðiprófi með þessum hætti og allir geta fundið áfanga við sitt hæfi, án þess að markmiðið sé búfræðipróf. Í fjarnám á Garð- og skógarplöntubraut, Skógræktarbraut, Umhverfisbraut og Ylræktarbraut eru nýnemar teknir inn annað hvert ár, næst haustið 2006. Nemendur eiga þess kost að taka þessar námsbrautir á hálfum hraða og ljúka námi á átta önnum í stað fjögurra.
|
|
|